jæja það hlaut að koma að því að maður færi aftur að blogg eitthvað. Ætla að reyna að vera duglegur að setja inn efni hérna. Þetta verður samt aðalega tónlistartengt efni eða eitthvað sem tengist kvikmyndagerð, margmiðlun eða grafískri hönnun. Veit ekki enn hvort þetta verði allt á Íslensku eða Ensku ætla að láta það ráðast.
Er að reyna að koma smá hreyfingu á músíkina mína, sendi út demo fyrir um ca. ári fékk svo allt í einu e-mail frá útgáfu í Hollandi sem hafði víst verið að leita að mér í næstum ár en ég gleymdi að setja contact info á ID3 tag-ið á mp3 skránum sem ég sendi……… úps. En ég er einmitt á póstlistanum hjá þeim og sáu þeir nafnið mitt að þá hringdi það einhverjum bjöllum að þeir ákváðu að hafa samaband við mig. Skondið að fá e-mail sem hljóða einhvern veginn svona:
Are you the producer Subminimal who send me two tracks awhile ago ? Please let me know as I am looking for that producer ?
Annars er ekkert enn komið útúr þessum pælingum en það verður vonandi eitthvað skemmtilegt.